Fáðu stutta samantekt fyrir hvern fund dagsins á morgnana
Settu upp tímasett verk sem fer yfir fundi dagsins áður en vinnudagurinn hefst og tekur saman fyrir hvern þeirra hvað var rætt síðast, hvað er enn opið og hvað þú vilt fá út úr fundinum, svo þú mætir undirbúin(n) án þess að leita í póstinum.
Svona gerir þú
- Tengdu Cowork eða Claude við dagatalið, póstinn og möppuna með fundargerðunum. Ef vinnustaðurinn notar Microsoft 365 eða Google Workspace geturðu líka notað Copilot eða Gemini.
- Keyrðu skipunina handvirkt nokkra morgna í röð og berðu samantektirnar saman við fundina sjálfa, svo þú sjáir hvað vantar eða hefur misskilist.
- Lagaðu skipunina, til dæmis hvaða fundum á að sleppa og hvar fundargerðirnar eru geymdar.
- Þegar þú treystir útkomunni geturðu sett skipunina upp sem tímasett verk í Cowork sem keyrir á virkum dögum áður en vinnudagurinn hefst.
Keyrðu þetta virka daga kl. [tími, til dæmis 07:30]. Ég starfa sem [starfsheiti]. Farðu yfir fundina í dagatalinu mínu í dag og slepptu [til dæmis föstum innanhússfundum og tímum sem ég hef tekið frá fyrir sjálfa(n) mig]. Fyrir hvern fund sem eftir stendur: 1. Finndu síðustu samskipti við þátttakendurna um efni fundarins: póst síðustu [fjöldi] vikna og fundargerðir og skjöl í [mappa eða drif]. 2. Skrifaðu samantekt, að hámarki tíu línur: hverjir mæta og hvaða hlutverki þeir gegna, um hvað var rætt síðast og hvað var ákveðið, hvað ég lofaði og hef ekki skilað, hvað ég bíð eftir frá þeim og spurningar sem þeir hafa borið upp en ekki fengið svar við. 3. Leggðu til í einni línu hvað ég ætti að reyna að fá út úr fundinum, og merktu það sem ágiskun ef það kemur ekki skýrt fram í gögnunum. 4. Nefndu þau skjöl sem ég ætti að hafa opin á fundinum og vísaðu í þau. 5. Ef þú finnur ekkert um fundinn, segðu það í einni línu í stað þess að fylla upp í. Settu allar samantektirnar í eitt skjal, [heiti skjals] með dagsetningu dagsins, í tímaröð fundanna. Sendu ekkert, svaraðu engum fundarboðum og breyttu engu í dagatalinu.
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Krefst þess að gervigreindin hafi aðgang að dagatali, pósti og skjölum. Notaðu aðeins verkfæri og tengingar sem vinnustaðurinn hefur samþykkt, því fundir og póstur geta innihaldið trúnaðarmál og upplýsingar um annað fólk.
Byggt á: Rowan Cheung
Verkfæri sem henta
-
Claude Cowork Vinnur í möppum og skjölum á tölvunni þinni.
-
Claude Spjall, skjöl og greining.
-
Microsoft Copilot Innbyggt í Word, Excel, Outlook og Teams.
-
Gemini Spjall, tengt Google-þjónustum.