leyst.is
Allar hugmyndir

Tengingar

Gervigreindin, tengd við það sem þú notar

Með tengingu getur Claude eða ChatGPT lesið póstinn þinn, fundið skjal, borið saman verð í íslenskri verslun eða fundið gistingu, í stað þess að þú afritir allt inn sjálf(ur). Hér eru aðeins opinberar tengingar, frá fyrirtækjunum sjálfum eða þeim sem gera Claude og ChatGPT.

  1. 1Bættu tengingunni við Einu sinni, í stillingum Claude eða ChatGPT.
  2. 2Leyfðu aðganginn Þú ræður hvað hún sér og getur aftengt hvenær sem er.
  3. 3Biddu um verkið Notaðu skipanirnar á hverri síðu eða skrifaðu þína eigin.

Íslensk fyrirtæki

Verð og vöruúrval beint úr íslenskum verslunum. Fleiri bætast við.

Póstur og dagatal

Gervigreindin les póstinn og dagatalið þitt og hjálpar þér að ná utan um vikuna.

Skjöl

Finndu og dragðu saman það sem liggur í skjölunum þínum.

Ferðalög

Leitaðu að gistingu með því að lýsa því sem þú vilt.

Tónlist

Lagalistar og hlaðvörp eftir tilefni og stemningu.

Er fyrirtækið þitt með tengingu við gervigreind? Við skrifum síðu um hana með skipunum sem fólk getur prófað strax, og segjum frá henni í morgunpóstinum.
Hafa samband

Aðeins opinberar tengingar eru á þessari síðu, frá fyrirtækjunum sjálfum eða þeim sem gera Claude og ChatGPT, aldrei tengingar þar sem þú þarft að afhenda lykilorð. „ChatGPT?“ þýðir að OpenAI hefur ekki staðfest að tengingin virki á Íslandi; áður voru tengingar ChatGPT ekki í boði á EES-svæðinu. Heiti í valmyndum breytast stundum. Ef tenging birtist ekki hjá þér, láttu okkur vita. Athugað síðast 22. október 2026.

5 hugmyndir á hverjum morgni

5 hlutir sem gervigreind getur leyst fyrir þig, í pósthólfið kl. 7.

Einn stuttur póstur á dag. Skipunin fylgir hverri hugmynd, svo þú prófar á fimm mínútum. Sjá síðasta póst

Ókeypis. Afskráning með einum smelli. Persónuvernd

Sendu inn hugmynd

Fékkstu gervigreind til að gera eitthvað gagnlegt, eða sástu einhvern gera það? Segðu okkur frá. Við lesum allt yfir áður en það birtist og getum þín ef þú vilt.