leyst.is
Allar tengingar

Íslensk fyrirtæki í gervigreindinni

Krónan

Krónan í Claude og ChatGPT

Opinber tenging frá Krónunni

Leitaðu í vöruúrvali Krónunnar, fáðu matseðil og innkaupalista með verði, og kláraðu pöntunina í Snjallverslun þegar listinn er tilbúinn.

Claude ChatGPT Ókeypis · engin innskráning · uppsetning um 1 mín.

Hvað getur hún gert?

Matur og verð

  • Leitað í öllu vöruúrvalinu
  • Stungið upp á vörum og uppskriftum
  • Tekið tillit til sérþarfa, t.d. glútenlaust
  • Gefið yfirlit yfir verð

Innkaupin

  • Búið til innkaupalista eftir þínum þörfum
  • Haldið sig innan upphæðar sem þú nefnir
  • Sent listann í Snjallverslun, þar sem þú klárar pöntunina

Hún les bara opinberar upplýsingar um vörur og verð. Hún kaupir ekkert og biður ekki um persónuupplýsingar. Verðin miðast við netverslunina.

Svona tengir þú

Claude

  1. Farðu í Customize → Connectors og veldu Add.
  2. Skrifaðu „Krónan“ sem nafn, límdu inn slóðina hér fyrir neðan og veldu Add og Connect.
  3. Í nýju spjalli: + → Connectors og kveiktu á Krónunni.
  4. Leyfðu tenginguna þegar Claude spyr í fyrsta sinn.

ChatGPT

  1. Opnaðu ChatGPT og farðu í Plugins / Viðbætur.
  2. Leitaðu að „Krónan“ og bættu henni við.
  3. Það er allt. Engin slóð og engin innskráning.
slóð tengingarinnar (fyrir Claude)
https://kronan.is/api/v3/mcp

Prófaðu þetta

Þegar tengingin er komin inn, límdu eina af þessum skipunum í nýtt spjall og skiptu út því sem er í [hornklofum].

Vikuinnkaupin innan ramma Prófað
Notaðu Krónu-tenginguna. Settu saman kvöldmat fyrir [fimm] kvöld fyrir [tvo fullorðna og tvö börn] og haltu heildinni undir [25.000 kr.]. Sýndu matseðilinn, svo innkaupalista flokkaðan eftir deildum með verði á hverri vöru og samtölu neðst. Slepptu kryddi og því sem flestir eiga til, og segðu mér hvað þú slepptir. Ef pakkastærð passar ekki við uppskriftina, segðu frá því. Notaðu bara verð sem koma fram hjá Krónunni og ekki giska.

Svar úr prófun

Prófað 17. október 2026 með tengingu Krónunnar. Fjölskyldan og upphæðin eru tilbúin dæmi. Verðin eru eins og þau voru hjá Krónunni þann dag.

Matseðill vikunnar

Innkaupalisti, 28 vörur

Kjöt og fiskurBlandað hakk ×2, kjúklingabringur, kjúklingalæri, ýsuflök9.529 kr.
MjólkurvörurSmjör, nýmjólk, rifinn mozzarella, rifinn heimilisostur2.486 kr.
Grænmeti og ávextirLaukur ×5, paprika ×2, steinselja ×2, kartöflur, sítrónur ×3, hvítlaukur2.456 kr.
Þurrvara og sósurSpaghetti, fusilli, hrísgrjón, pastasósa, tikka masala sósa, kókosmjólk, salsa, hakkaðir tómatar, nýrnabaunir, maískorn, takkókrydd, hveiti, dijon, kjúklingakraftur3.507 kr.
Samtals17.978 kr.

Sleppt: salt, pipar, ólífuolía, karrí, fiskikrydd og oregano, um 1.100 kr. fyrir kryddin.

Pakkastærðir: uppskriftin að plokkfiski kallar á 600 g af ýsu, en Krónan gefur verð á pakka, ekki eftir þyngd. Athugaðu magnið á fiski og kjúklingi áður en þú pantar.

Kvöldmatur úr því sem er til
Notaðu Krónu-tenginguna. Ég á [kjúklingabringur, hrísgrjón, papriku og lauk] heima. Stingdu upp á þremur kvöldréttum sem nýta þetta og listaðu aðeins það sem ég þarf að kaupa til viðbótar í Krónunni, með verði.
Nesti vikunnar með sérþarfir
Notaðu Krónu-tenginguna. Ég þarf nesti fyrir [tvö börn] í [fimm] skóladaga. [Annað þeirra má ekki borða glúten.] Gerðu fjölbreyttan nestislista fyrir vikuna og innkaupalista úr Krónunni með verði, innan [8.000 kr.].
Jólabaksturinn
Notaðu Krónu-tenginguna. Ég ætla að baka [þrjár sortir] fyrir jólin, til dæmis [piparkökur, lakkrístoppa og súkkulaðibitakökur]. Finndu uppskrift að hverri, reiknaðu hvað ég þarf mikið af hverju hráefni samtals og búðu til einn innkaupalista úr Krónunni með verði og samtölu.

Gervigreindin getur misreiknað sig. Berðu samtöluna saman við körfuna í Snjallverslun áður en þú pantar.

Fyrsta skipunin var prófuð 17. október 2026, hinar ekki enn. Leitin í uppskriftum Krónunnar virkar best með hráefnum („kjúklingur“, „hakk“) frekar en almennum orðum eins og „kvöldmatur“. Athugað síðast 17. október 2026 · Heimild: kronan.is

5 hugmyndir á hverjum morgni

5 hlutir sem gervigreind getur leyst fyrir þig, í pósthólfið kl. 7.

Einn stuttur póstur á dag. Skipunin fylgir hverri hugmynd, svo þú prófar á fimm mínútum. Sjá síðasta póst

Ókeypis. Afskráning með einum smelli. Persónuvernd

Sendu inn hugmynd

Fékkstu gervigreind til að gera eitthvað gagnlegt, eða sástu einhvern gera það? Segðu okkur frá. Við lesum allt yfir áður en það birtist og getum þín ef þú vilt.