Persónuvernd
Hvað við vitum um þig
Stutta svarið: netfangið þitt, ef þú skráir þig á póstlistann, og nafnlausa talningu á heimsóknum.
Póstlistinn
Þegar þú skráir þig vistum við netfangið þitt hjá Resend, þjónustunni sem sendir póstinn fyrir okkur. Við notum það eingöngu til að senda þér hugmyndir dagsins og afhendum það engum öðrum. Í hverjum pósti er tengill til að afskrá sig og þá hættum við að senda þér póst.
Við mælum hvort pósturinn er opnaður og hvaða tenglar í honum eru opnaðir, til að sjá hvaða hugmyndir nýtast. Resend sér um mælinguna með lítilli mynd í póstinum og með því að beina tenglum um track.leyst.is. Tenglarnir eru auk þess merktir svo heimsóknir úr póstinum sjáist sem ein heild í talningu vefsins.
Ef þú skráir áhuga á síðunni um starfsmenn vistum við netfangið þitt hjá Resend, ásamt því hvaða starfsmann þú valdir og því sem þú segir um hvernig þú myndir nýta hann. Við notum það eingöngu til að láta þig vita af því verkefni. Þú ferð ekki á póstlistann. Svar við spurningunni um hvað tekur mestan tíma berst í pósthólf okkar án netfangs eða nafns.
Ef þú sendir inn hugmynd berst hún í pósthólf okkar með því sem þú skrifar, slóðinni og nafninu ef þú gefur það upp. Við birtum nafnið aðeins ef hugmyndin fer á vefinn og þú baðst um að þín yrði getið.
Ef fyrirtæki pantar kynningu berst pöntunin, ásamt merki og upplýsingum um tengilið, í pósthólf okkar. Greiðslan fer í gegnum Kling, sem tekur við kennitölu fyrirtækisins og stofnar kröfu í heimabanka þess. Upplýsingarnar eru aðeins notaðar til að afgreiða pöntunina og gefa út reikning.
Vefurinn sjálfur
Vefurinn notar engar vafrakökur. Við teljum heimsóknir með Vercel Web Analytics: hvaða síður eru skoðaðar, hvaðan gestir koma og í hvers konar tæki. Talningin auðkennir þig ekki og fylgir þér ekki milli vefja eða daga.
Þegar þú afritar skipun teljum við það, svo við sjáum hvaða hugmyndir nýtast. Við geymum aðeins heiti hugmyndarinnar og fjöldann, ekkert um þig eða tækið þitt. Sama gildir þegar þú merkir hugmynd sem gagnlega: við geymum aðeins fjöldann, og vafrinn þinn man hvað þú merktir.
Það sem þú vistar og val þitt á ljósu eða dökku útliti er geymt í vafranum þínum og fer aldrei til okkar. Vefurinn er hýstur hjá Vercel, sem skráir tæknilegar upplýsingar á borð við IP-tölu í atvikaskrár eins og vefþjónar gera almennt.
Skipanirnar
Þegar þú afritar skipun og notar hana í gervigreindarverkfæri gilda skilmálar þess verkfæris um það sem þú slærð inn eða hleður upp. Við sjáum ekkert af því.
Hafa samband
Leyst er rekið af Melkvist ehf., kt. 570724-0290, sem ber ábyrgð á þeim upplýsingum sem hér er lýst.
Viltu láta eyða netfanginu þínu eða spyrja um eitthvað? Skrifaðu á hallo@leyst.is.