Íslensk fyrirtæki í gervigreindinni
ELKO í Claude og ChatGPT
Opinber tenging frá ELKO
Leitaðu í vöruúrvali ELKO, berðu saman verð og lagerstöðu í hverri verslun og haltu utan um pantanir og óskalista, beint úr gervigreindinni.
Hvað getur hún gert?
Án innskráningar
- Leitað í öllu vöruúrvalinu
- Borið saman vörur
- Séð verð og verðsögu
- Athugað lagerstöðu í hverri verslun
Með ELKO-reikningi
Allt til vinstri, og að auki:
- Séð pantanir og kvittanir
- Bætt í körfu og óskalista
- Vaktað hvenær vara kemur aftur
Hún getur ekki keypt eða borgað. Þú klárar kaupin alltaf sjálf(ur) á elko.is.
Svona tengir þú
Claude
- Opnaðu Claude á vefnum og farðu í Customize → Connectors.
- Veldu Add custom connector og skrifaðu „ELKO“ sem nafn.
- Límdu inn slóðina hér fyrir neðan og veldu Add.
- Viltu sjá pantanir? Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum þegar Claude biður um það.
ChatGPT
- Farðu á chatgpt.com/plugins og veldu New Plugin.
- Skrifaðu „ELKO“ sem nafn og límdu inn slóðina hér fyrir neðan.
- Veldu No Auth fyrir vörulistann, eða OAuth til að tengja reikninginn.
- Virkar ekki með ókeypis aðgangi að ChatGPT.
https://elko.is/mcp
Prófaðu þetta
Þegar tengingin er komin inn, límdu eina af þessum skipunum í nýtt spjall.
Notaðu ELKO-tenginguna. Ég er að leita að [þvottavél] fyrir [fjögurra manna fjölskyldu] og vil ekki borga meira en [120.000 kr.]. Finndu þrjár bestu í vöruúrvali ELKO, slepptu vörum sem eru hættar í sölu, og berðu þær saman í töflu: verð, þvottageta, orkuflokkur og hávaði. Segðu mér í hvaða verslunum þær eru til á lager núna og hvort verðið hefur verið lægra áður. Ef upplýsingar vantar, til dæmis um ábyrgð, segðu frá því í stað þess að giska.
Svar úr prófun
Prófað 17. október 2026 með tengingu ELKO, án innskráningar. Fjölskyldan og upphæðin eru tilbúin dæmi. Verð og lagerstaða eins og hjá ELKO þann dag.
| Vél | Verð | Geta | Orka | Hávaði |
| Electrolux SensiCare 600 | 109.995 kr. | 10,5 kg | A | 76 dB |
| Siemens iQ300 | 99.995 kr. | 8 kg | A | 72 dB |
| AEG LR612M84I | 99.995 kr. | 8 kg | A | 74 dB |
Mat: Electrolux er með stærstu tromluna og skammtar þvottaefnið sjálf, sem hentar stórri fjölskyldu. Siemens er hljóðlátust og með vörn gegn vatnstjóni.
Lager: engin vélanna er til í verslunum í dag, aðeins í vefverslun.
Verðsaga: AEG-vélin hefur tvisvar farið niður í 79.995 kr. á útsölu, í janúar og júlí 2026. Ef þú getur beðið gæti borgað sig að bíða.
Vantar: upplýsingar um ábyrgð koma ekki fram hjá ELKO. Þrjár vélar sem eru hættar í sölu voru ekki teknar með.
Notaðu ELKO-tenginguna. Skoðaðu verðsöguna á [vöru, t.d. AirPods Pro] og segðu mér hvort núverandi verð er lágt, venjulegt eða hátt miðað við síðustu mánuði. Ef verðið hefur oft verið lægra, segðu mér hvenær og hve mikið.
Notaðu ELKO-tenginguna. Ég þarf jólagjafir fyrir [fimm manns: t.d. 12 ára strák sem spilar tölvuleiki, ömmu sem hlustar á útvarp] og heildarupphæðin má ekki fara yfir [60.000 kr.]. Stingdu upp á einni gjöf fyrir hvern úr vöruúrvali ELKO, sýndu verðið og samtöluna, og settu þær á óskalistann minn þegar ég hef samþykkt listann. Ekki setja neitt í körfuna.
Notaðu ELKO-tenginguna. Finndu pöntunina eða kvittunina fyrir [ryksugunni] sem ég keypti [í fyrra] og segðu mér kaupdaginn, verðið og pöntunarnúmerið. Ég þarf þetta vegna [ábyrgðar].
Innskráning fer fram með rafrænum skilríkjum hjá ELKO, ekki hjá Leyst. Gervigreindin sér aðeins það sem þú leyfir, og þú getur aftengt hana hvenær sem er í stillingum Claude eða ChatGPT.
Fyrsta skipunin var prófuð 17. október 2026, hinar ekki enn. Athugað síðast 17. október 2026 · Heimild: elko.is/gervigreind