Rekstur og smáfyrirtæki
Finndu það sem vantar í starfsmannahandbókina og skrifaðu drög
Láttu fara yfir handbókina eða þær reglur sem til eru á vinnustaðnum og fáðu lista yfir það sem vantar, til dæmis um veikindatilkynningar, samfélagsmiðla eða notkun gervigreindar, ásamt drögum að köflunum sem þú berð svo undir fagaðila.
Svona gerir þú
- Opnaðu Claude í vafra eða appi.
- Hafðu gögnin tilbúin sem skipunin vísar í, til dæmis skjal, yfirlit eða texta, og hladdu þeim upp eða límdu þau inn.
- Límdu skipunina inn, skiptu út því sem er í [hornklofum] og sendu.
- Lestu svarið yfir og biddu um lagfæringar ef eitthvað vantar eða stenst ekki.
Ég rek [tegund fyrirtækis] með [fjöldi] starfsmenn. Hér er það sem við eigum skriflegt um reglur og verklag á vinnustaðnum: [starfsmannahandbók, eldri reglur, tölvupóstar eða minnispunktar, eða „ekkert skriflegt“]. Starfsfólkið vinnur samkvæmt [kjarasamningur, ef þú veist hver hann er]. 1. Taktu saman í töflu hvað er þegar fjallað um í gögnunum og hvar. 2. Gerðu lista yfir efni sem vantar eða er óskýrt, til dæmis mætingu og veikindatilkynningar, óskir um orlof, vaktaskipti, notkun síma og samfélagsmiðla í vinnunni, myndatökur á vinnustaðnum, notkun gervigreindar, meðferð upplýsinga um viðskiptavini, öryggi og viðbrögð við slysum, og hvert starfsfólk leitar ef það verður fyrir einelti eða áreitni. Raðaðu listanum eftir því hve miklu hvert efni skiptir í rekstri af þessu tagi. 3. Finndu á vef Vinnueftirlitsins og Persónuverndar hvaða skriflegu áætlanir eða reglur atvinnurekendur þurfa að hafa, vísaðu í slóð við hvert atriði og segðu mér hvað af því vantar hjá okkur. Ef þú finnur ekki heimild, segðu það. 4. Spurðu mig hvernig við viljum hafa hlutina í þeim þremur til fimm efnum sem skipta mestu, einnar spurningar í einu. 5. Skrifaðu svo drög að þeim köflum á skýru og vinsamlegu máli, stutt og án lagamáls, í sama stíl og það sem fyrir er. 6. Merktu hvert atriði í drögunum sem þarf að bera saman við kjarasamninginn eða lög, svo sem um veikindarétt, orlof, uppsagnarfrest og vinnutíma. Búðu ekki til reglur um réttindi starfsfólks upp á eigin spýtur og gefðu þér engar forsendur um efni kjarasamningsins. Ef ákvæði í drögunum gæti stangast á við réttindi starfsfólks, segðu það.
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Reglur vinnustaðarins mega ekki skerða réttindi sem starfsfólk á samkvæmt lögum og kjarasamningum. Láttu lögfræðing eða samtök atvinnurekenda sem þið eigið aðild að fara yfir drögin áður en þau taka gildi, og kynntu breytingarnar fyrir starfsfólkinu.
Byggt á: OpenAI Academy
Verkfæri sem henta
-
Claude Spjall, skjöl og greining.
-
ChatGPT Spjall, skjöl og greining.
-
Microsoft Copilot Innbyggt í Word, Excel, Outlook og Teams.
-
Gemini Spjall, tengt Google-þjónustum.