Rekstur og smáfyrirtæki
Farðu yfir verðskrána fyrir áramót
Berðu saman verðin á vefnum, í nýlegum tilboðum og kostnaðinn á bak við hverja þjónustu, og fáðu tillögu að nýrri verðskrá og kurteisa tilkynningu til fastra viðskiptavina.
Svona gerir þú
- Opnaðu Claude Cowork og veldu möppuna sem á að vinna í. Taktu afrit af henni fyrst ef skrárnar skipta máli.
- Límdu skipunina inn, skiptu út því sem er í [hornklofum] og sendu.
- Farðu yfir áætlunina sem hann leggur fram áður en þú leyfir honum að breyta nokkru.
- Lestu svarið yfir og biddu um lagfæringar ef eitthvað vantar eða stenst ekki.
Ég rek [tegund fyrirtækis] og ætla að fara yfir verðin fyrir [dagsetning]. Hér eru gögnin: verðskráin eins og hún birtist á vefnum, [10–20] nýleg tilboð eða reikningar til viðskiptavina, og yfirlit yfir helstu kostnaðarliði og hvernig þeir hafa breyst síðasta árið: [laun, efni, húsaleiga, annað]. 1. Berðu verðskrána á vefnum saman við tilboðin og reikningana. Listaðu þjónustu þar sem verðin stemma ekki, þjónustu sem er á vefnum en ég er hætt(ur) að bjóða, og það sem ég sel en kemur hvergi fram á vefnum. 2. Reiknaðu fyrir helstu þjónustuna hvað hún kostar mig og hve mikið stendur eftir, út frá kostnaðartölunum sem ég gef upp. Sýndu útreikningana og merktu það sem byggir á ágiskun. 3. Leggðu til nýja verðskrá í töflu: núverandi verð, tillaga, breyting í prósentum og rökin. Sýndu tvær leiðir: að hækka allt jafnt eða að hækka mest þar sem minnst stendur eftir. 4. Skrifaðu stutta og kurteisa tilkynningu til fastra viðskiptavina sem segir hvað breytist, frá hvaða degi og hvers vegna, á hreinskilinn hátt og án óþarfa afsakana. 5. Skrifaðu nýjan texta fyrir verðskrána á vefnum. Breyttu engu á vefnum og sendu ekkert. Ef þú ert ekki viss um hvort verð er með eða án virðisaukaskatts, spurðu mig.
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Þetta er undirbúningur, ekki ráðgjöf. Ef þú ert með samninga við viðskiptavini, kannaðu hvað þeir segja um verðbreytingar og fyrirvara áður en þú tilkynnir nýtt verð.
Verkfæri sem henta
-
Claude Cowork Vinnur í möppum og skjölum á tölvunni þinni.
-
Claude Spjall, skjöl og greining.
-
ChatGPT Spjall, skjöl og greining.
-
Microsoft Copilot Innbyggt í Word, Excel, Outlook og Teams.