Rekstur og smáfyrirtæki
Fáðu úttekt á vefnum þínum með augum viðskiptavinar
Láttu gervigreindina fara í gegnum vefinn eins og nýr gestur og skila forgangsraðaðri töflu yfir það sem er óljóst, vantar eða stendur í vegi fyrir því að fólk hafi samband eða kaupi.
Svona gerir þú
- Opnaðu Claude í vafra eða appi.
- Hafðu gögnin tilbúin sem skipunin vísar í, til dæmis skjal, yfirlit eða texta, og hladdu þeim upp eða límdu þau inn.
- Límdu skipunina inn, skiptu út því sem er í [hornklofum] og sendu.
- Lestu svarið yfir og biddu um lagfæringar ef eitthvað vantar eða stenst ekki.
Vefurinn okkar er [slóð]. Við erum [tegund fyrirtækis] og viljum að gestir [bóki tíma / sendi fyrirspurn / kaupi í vefverslun]. Dæmigerður viðskiptavinur er [lýsing]. Skoðaðu forsíðuna og helstu undirsíður eins og gestur sem þekkir okkur ekki: 1. Segðu mér, út frá forsíðunni einni, hvað við gerum, fyrir hverja og hvað gesturinn á að gera næst. Ef það er óljóst, segðu það. 2. Fylgdu leiðinni að [bókun / fyrirspurn / kaupum], skráðu hvert skref og hvar gestur gæti gefist upp. 3. Listaðu upplýsingar sem vantar eða erfitt er að finna: verð, opnunartíma, staðsetningu, skilmála og hver stendur á bak við reksturinn. 4. Bentu á málvillur, ensku innan um íslenskuna og texta sem segir ekkert. Skilaðu töflu með tíu úrbótum í forgangsröð: hvað, á hvaða síðu, hvers vegna og tillaga að nýjum texta þar sem við á. Vitnaðu orðrétt í vefinn. Ef þú komst ekki inn á síðu, segðu það í stað þess að geta þér til um efnið. Ekki fylla út eða senda nein eyðublöð.
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Verkfæri sem henta
-
Claude Spjall, skjöl og greining.
-
ChatGPT Spjall, skjöl og greining.
-
Claude í Chrome Vafrar og smellir fyrir þig í þínum vafra.
-
ChatGPT Agent Vafrar og vinnur verk í skrefum.