Gerðu skriflegu áætlunina um öryggi og heilbrigði sem hver vinnustaður þarf að hafa
Lýstu vinnustaðnum og störfunum og fáðu drög að áhættumati, aðgerðalista þar sem hver aðgerð hefur ábyrgðarmann og dagsetningu, og spurningar til að fara yfir með starfsfólkinu, byggt á leiðbeiningum Vinnueftirlitsins.
Svona gerir þú
- Skrifaðu hjá þér hvert starf á vinnustaðnum í einni línu og spurðu starfsfólkið hvað því finnst erfiðast eða hættulegast í vinnunni.
- Límdu skipunina inn í Claude, ChatGPT, Copilot eða Gemini með vefleit virka og hengdu eldra áhættumat við ef það er til.
- Gakktu um vinnustaðinn með drögin, lagaðu það sem passar ekki og kynntu lokaútgáfuna fyrir starfsfólkinu.
Ég rek [tegund starfsemi, til dæmis kaffihús, hárgreiðslustofu, bókhaldsstofu eða smíðaverkstæði] í [sveitarfélag] með [fjöldi] starfsmenn. Störfin eru: [hvert starf í einni línu, til dæmis „afgreiðsla og uppvask, vaktir til kl. 22“ eða „smíðar á verkstað, unnið í stigum og með vélsagir“]. [Hjá okkur vinna ungmenni yngri en 18 ára.] [Við erum með öryggistrúnaðarmann / Við erum ekki með öryggistrúnaðarmann.] Þetta hefur komið upp síðustu ár: [til dæmis smáslys, álag í desember, kvartanir um kulda eða ekkert sérstakt]. [Hér er eldra áhættumat eða það sem við eigum skrifað: skjal.] 1. Finndu á vef Vinnueftirlitsins á island.is hvað áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað þarf að innihalda, hvernig áhættumat er gert og hvaða sniðmát og hjálpargögn eru í boði. Vísaðu í slóð og byggðu á þeirri uppbyggingu. 2. Farðu kerfisbundið yfir hvert starf eftir meginþáttum vinnuverndar eins og Vinnueftirlitið lýsir þeim og gerðu drög að áhættumati í töflu: starf, áhættuþáttur, hvað getur gerst, hversu líklegt og alvarlegt það er, hvað er þegar gert og hvað þarf að bæta. Merktu það sem þú ályktar út frá lýsingunni minni, svo ég sjái hvað þarf að staðfesta á staðnum. 3. Gerðu áætlun um forvarnir: aðgerð, hver ber ábyrgð á henni og hvenær hún á að vera komin til framkvæmda. Byrjaðu á því sem er alvarlegast. 4. Skrifaðu spurningar sem ég legg fyrir starfsfólkið, til dæmis á starfsmannafundi, til að finna áhættur sem ég sé ekki sjálf(ur), líka andlegt álag og samskipti. 5. Settu allt upp sem eitt skjal sem ég get kynnt starfsfólkinu og haft aðgengilegt, með dagsetningu og reit fyrir næstu endurskoðun. 6. Segðu mér hvort eitthvað í starfseminni virðist krefjast sérþekkingar sem ég ætti að fá viðurkenndan þjónustuaðila til að meta. Fullyrtu ekkert um lög eða kröfur nema þú getir vísað í heimild á vef Vinnueftirlitsins eða í lögunum sjálfum. Ef þú finnur ekki heimild, segðu það.
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Samkvæmt Vinnueftirlitinu bera allir atvinnurekendur ábyrgð á að gerð sé skrifleg áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað, óháð stærð, og hún felur í sér áhættumat og áætlun um heilsuvernd og forvarnir. Drög frá gervigreind koma ekki í stað þess að fara yfir vinnustaðinn með starfsfólkinu. Settu ekki inn upplýsingar um heilsu eða veikindi einstakra starfsmanna.
Verkfæri sem henta
-
Claude Spjall, skjöl og greining.
-
ChatGPT Spjall, skjöl og greining.
-
Microsoft Copilot Innbyggt í Word, Excel, Outlook og Teams.
-
Gemini Spjall, tengt Google-þjónustum.