Skrifaðu stílbók fyrirtækisins svo fleiri geti skrifað í þínum anda
Ef allir textar fyrirtækisins fara í gegnum þig: láttu gervigreindina lesa það sem þú hefur skrifað og fáðu stílbók á einni til tveimur síðum, með orðum sem þið notið og forðist og dæmum, sem starfsfólk og gervigreindin sjálf geta skrifað eftir í tölvupóstum, færslum og auglýsingum.
Svona gerir þú
- Safnaðu saman textum sem þú ert ánægð(ur) með og fjarlægðu nöfn, netföng og aðrar upplýsingar um viðskiptavini.
- Límdu skipunina inn í Claude, ChatGPT, Gemini eða Copilot, svaraðu spurningunum og lagaðu stílbókina þar til hún lýsir ykkur.
- Settu fyrirmælin inn sem verkefni í Claude eða ChatGPT eða sem Gem í Gemini, svo starfsfólk geti beðið um drög sem fylgja þeim. Lestu textana yfir áður en þeir fara út.
Ég rek [tegund rekstrar] og hef sjálf(ur) skrifað nær alla texta fyrirtækisins. Nú vil ég að [starfsmaður / samstarfsfólk] geti skrifað drög sem hljóma eins og við, án þess að ég þurfi að endurskrifa hverja línu. Hér eru dæmi um texta sem ég er ánægð(ur) með: [til dæmis 10 til 20 tölvupóstar til viðskiptavina, færslur á samfélagsmiðlum, fréttabréf og texti af vefnum]. [Hér eru líka dæmi sem mér finnst ekki hljóma eins og við: [dæmi].] 1. Lestu textana og lýstu röddinni okkar í fáum orðum: hvernig við ávörpum fólk (þú eða þið), hve formleg við erum, hve langar setningarnar eru, hvort við notum kímni, hvernig við byrjum og endum pósta og hvað við gerum aldrei. 2. Taktu saman orðalista: orð og orðasambönd sem við notum, orð sem við forðumst og hvernig við skrifum heiti á vörum, þjónustu og fyrirtækinu sjálfu. 3. Sýndu þrjú stutt dæmi þar sem almennur texti er færður í okkar rödd: tölvupóst til viðskiptavinar, færslu á samfélagsmiðlum og svar við kvörtun. 4. Spurðu mig um það sem þú getur ekki ráðið af dæmunum, til dæmis hvort við skrifum líka á ensku og hvernig við svörum reiðum viðskiptavini. 5. Skilaðu stílbókinni á einni til tveimur síðum sem ég get prentað eða deilt, og að auki stuttum fyrirmælum sem ég get sett inn í gervigreindina svo drögin hennar fylgi stílbókinni. 6. Prófaðu stílbókina: skrifaðu drög að [verkefni, til dæmis tilboðspósti eða færslu um nýja vöru] eftir henni og bentu á hvar þú varst í vafa. Byggðu aðeins á dæmunum sem ég gaf þér og búðu ekki til staðreyndir um fyrirtækið.
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Byggt á: Claude.com (Rebel Cheese)
Verkfæri sem henta
-
Claude Spjall, skjöl og greining.
-
ChatGPT Spjall, skjöl og greining.
-
Gemini Spjall, tengt Google-þjónustum.
-
Microsoft Copilot Innbyggt í Word, Excel, Outlook og Teams.