Rekstur og smáfyrirtæki
Kortleggðu samkeppnina á íslenskum markaði
Láttu fulltrúa skoða vefi keppinauta og taka saman vöruframboð, verð og áherslur í eina töflu.
Svona gerir þú
- Opnaðu ChatGPT Agent og skráðu þig sjálf(ur) inn á þær síður sem fulltrúinn á að vinna á.
- Límdu skipunina inn, skiptu út því sem er í [hornklofum] og sendu.
- Fylgstu með á meðan hann vinnur og staðfestu sjálf(ur) allt sem kostar peninga eða sendir eitthvað frá þér.
- Lestu svarið yfir og biddu um lagfæringar ef eitthvað vantar eða stenst ekki.
Við seljum [vöru / þjónustu] á Íslandi. Helstu keppinautar eru [listi] en finndu fleiri ef þeir eru til. Skoðaðu vef hvers keppinautar og taktu saman í töflu: vöruframboð, verð sem birt er opinberlega, markhóp, helstu söluskilaboð og afhendingar- og skilaskilmála. Skráðu slóð við hvert atriði og dagsetninguna í dag. Dragðu svo fram þrjú atriði þar sem við stöndum betur og þrjú þar sem við stöndum verr. Notaðu aðeins upplýsingar sem eru opinberar á vefnum.
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Verkfæri sem henta
-
ChatGPT Agent Vafrar og vinnur verk í skrefum.
-
Claude í Chrome Vafrar og smellir fyrir þig í þínum vafra.
-
Claude Spjall, skjöl og greining.