Láttu fulltrúa fylla körfuna í netverslun
Gefðu fulltrúa innkaupalistann og láttu hann tína vörurnar í körfu í netverslun matvöruverslunar. Þú ferð yfir körfuna og greiðir sjálf(ur).
Svona gerir þú
- Opnaðu Claude í Chrome og skráðu þig sjálf(ur) inn á þær síður sem fulltrúinn á að vinna á.
- Límdu skipunina inn, skiptu út því sem er í [hornklofum] og sendu.
- Fylgstu með á meðan hann vinnur og staðfestu sjálf(ur) allt sem kostar peninga eða sendir eitthvað frá þér.
- Lestu svarið yfir og biddu um lagfæringar ef eitthvað vantar eða stenst ekki.
Ég er skráð(ur) inn í netverslun [verslun] í vafranum. Hér er innkaupalistinn: [listi með magni]. 1. Leitaðu að hverri vöru og settu hana í körfuna. Veldu [ódýrasta kostinn / vörumerkið sem ég tilgreini] og rétt magn. 2. Ef vara er ekki til, veldu ekki aðra í staðinn upp á eigin spýtur. Skráðu hana á lista og leggðu til tvo kosti. 3. Þegar listinn er búinn: sýndu mér yfirlit yfir körfuna, einingaverð, heildarverð og það sem vantar. 4. Stoppaðu þar. Ekki velja afhendingartíma, ekki fara í greiðsluskref og ekki staðfesta pöntun. Ef vefurinn biður um innskráningu, kortaupplýsingar eða rafræn skilríki, stoppaðu og láttu mig vita.
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Virkar betur með tengingu. Þá sækir gervigreindin gögnin sjálf í stað þess að þú afritir þau inn.
Krónan
Þú skráir þig sjálf(ur) inn og gengur sjálf(ur) frá greiðslu. Farðu yfir körfuna áður en þú pantar, því fulltrúar velja stundum ranga stærð eða rangt magn.
Verkfæri sem henta
-
Claude í Chrome Vafrar og smellir fyrir þig í þínum vafra.
-
ChatGPT Agent Vafrar og vinnur verk í skrefum.