Forritun og sjálfvirkni
Fáðu daglegt fréttayfirlit um þitt svið
Settu upp verk sem les miðlana og stofnanavefina sem skipta þig máli á hverjum morgni, síar frá það sem kemur þér ekki við og sendir stutta samantekt með slóðum.
Svona gerir þú
- Opnaðu ChatGPT í vafra eða appi.
- Hafðu gögnin tilbúin sem skipunin vísar í, til dæmis skjal, yfirlit eða texta, og hladdu þeim upp eða límdu þau inn.
- Límdu skipunina inn, skiptu út því sem er í [hornklofum] og sendu.
- Lestu svarið yfir og biddu um lagfæringar ef eitthvað vantar eða stenst ekki.
Keyrðu þetta alla virka daga kl. [tími]. 1. Skoðaðu þessar síður: [slóðir á fjölmiðla, stofnanir og fagmiðla]. 2. Haltu aðeins eftir því sem birtist síðasta sólarhringinn og fjallar um [svið eða efnisorð, t.d. sjávarútveg, skipulagsmál eða vaxtaákvarðanir]. 3. Sameinaðu fréttir um sama mál og skrifaðu eina til tvær setningar um hvert, með slóð á hverja frétt. 4. Raðaðu eftir því hvað skiptir mig mestu: [hvað ég vinn við eða fylgist með]. Ef ekkert fannst, sendu eina línu um það. Bættu engu við sem stendur ekki í fréttunum sjálfum og endurbirtu ekki heilar greinar. Taktu fram ef þú komst ekki inn á einhverja síðuna, til dæmis vegna áskriftar.
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Verkfæri sem henta
-
ChatGPT Spjall, skjöl og greining.
-
Claude Cowork Vinnur í möppum og skjölum á tölvunni þinni.
-
Claude Spjall, skjöl og greining.