Taktu til í skjáskotunum og finndu þau sem sýna kortanúmer eða skilríki
Bentu Claude Cowork á möppu með hundruðum eða þúsundum skjáskota og fáðu þau flokkuð eftir því hvað þau sýna, með lýsandi heitum, svo kvittanir og bókanir finnist aftur. Í leiðinni færðu lista yfir það sem má henda og, það sem mestu skiptir, skjáskot sem sýna kortanúmer, lykilorð eða skilríki og eiga ekki að liggja á glámbekk.
Svona gerir þú
- Safnaðu skjáskotunum í eina möppu á tölvunni, ef þau eru ekki þegar á einum stað, og taktu afrit af henni á annan stað.
- Opnaðu Claude Cowork, veittu því aðeins aðgang að möppunni og límdu skipunina inn.
- Farðu sjálf(ur) yfir möppuna Viðkvæmt: eyddu því sem þú þarft ekki og breyttu lykilorðum sem sjást á skjáskotum. Eyddu frumritunum ekki fyrr en þú hefur skoðað afritin.
Í möppunni [heiti möppu] eru um [fjöldi] skjáskot af [tölvunni / símanum], frá [ár] til dagsins í dag. Ég vil koma reglu á þau og finna þau sem ættu ekki að vera geymd svona. Þetta held ég að sé helst þarna: [til dæmis kvittanir og greiðslustaðfestingar, bókanir og miðar, uppskriftir, skjáskot úr vinnunni, myndir af skjölum og grín]. 1. Teldu skrárnar og segðu mér hve mikið pláss þær taka. Hreyfðu ekkert ennþá. 2. Skoðaðu nokkur skjáskot af handahófi og leggðu til möppuskipulag eftir því hvað þau sýna, til dæmis Kvittanir, Bókanir og miðar, Vinna, Til að lesa og Má henda. Bíddu eftir samþykki mínu. 3. Farðu svo yfir skjáskotin í litlum skömmtum. Afritaðu hvert þeirra í rétta möppu með lýsandi heiti á forminu ÁÁÁÁ-MM-DD stutt lýsing, til dæmis „2026-03-14 kvittun flugfélag“. Það sem þú ert ekki viss um fer í möppuna Óvíst. 4. Settu sérstaklega til hliðar öll skjáskot sem virðast sýna kortanúmer, lykilorð, öryggiskóða, skilríki, vegabréf, kennitölur eða bankaupplýsingar. Afritaðu þau í möppuna Viðkvæmt og skráðu aðeins skráarheiti og hvers konar upplýsingar eru á hverju, ekki upplýsingarnar sjálfar. 5. Skrifaðu stutt yfirlit í lokin: hve mörg fóru í hverja möppu, hvað þú settir í Má henda og hvers vegna, og hvað ég ætti að gera við það sem er í Viðkvæmt. Eyddu engu og hladdu engu upp á aðrar vefþjónustur. Frumritin eiga að standa óhreyfð þar til ég hef farið yfir afritin. Ef mynd er of stór til að skoða, búðu til minnkað afrit til að skoða og láttu frumritið vera.
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Gervigreindin skoðar myndirnar sjálfar, og skjáskot geta sýnt viðkvæmar upplýsingar um þig og aðra, til dæmis skilaboð og kortanúmer. Notaðu aðeins verkfæri sem þú treystir og veittu því aðgang að þessari einu möppu.
Byggt á: Karen Spinner, Wondering About AI
Verkfæri sem henta
-
Claude Cowork Vinnur í möppum og skjölum á tölvunni þinni.
-
Claude Code Skrifar og keyrir kóða.