Fáðu fleiri smelli úr Google-leit með betri fyrirsögnum
Sæktu yfirlit úr Google Search Console yfir síður sem birtast oft í leit en fáir smella á, og fáðu tillögur að nýjum fyrirsögnum og lýsingum sem svara því sem fólk leitar í raun að, í tóni fyrirtækisins.
Svona gerir þú
- Opnaðu Google Search Console, veldu skýrsluna um leitarniðurstöður (Performance), stilltu tímabilið og flyttu út síður og leitarorð. Ef þú hefur ekki aðgang, biddu þann sem setti upp vefinn að bæta þér við.
- Hladdu skránum upp í Claude, ChatGPT eða Gemini, hafðu vefleit virka og límdu skipunina inn.
- Lestu tillögurnar yfir, breyttu fyrirsögnunum í vefumsjónarkerfinu og skoðaðu sömu skýrslu aftur eftir nokkrar vikur.
Fyrirtækið mitt er [tegund fyrirtækis] og vefurinn er [slóð]. Hér er útflutningur úr Google Search Console fyrir síðustu [28 / 90] daga, með síðum og leitarorðum: [CSV-skrár]. Hér eru líka tveir til þrír textar af vefnum sem hljóma eins og við viljum hljóma: [textar eða slóðir]. 1. Finndu síður sem birtast oft í leit en fá fáa smelli: fleiri en [100] birtingar, smellihlutfall undir [1]% og meðalstaða betri en [30]. Settu þær í töflu: slóð, birtingar, smellir, smellihlutfall, meðalstaða og algengustu leitarorðin. 2. Opnaðu hverja síðu og skráðu núverandi fyrirsögn (title) og lýsingu (meta description). Ef þú kemst ekki inn á síðu, segðu það í stað þess að giska. 3. Berðu fyrirsögnina saman við leitarorðin og segðu í einni setningu hvers vegna fólk smellir líklega ekki, til dæmis ef hún svarar ekki því sem leitað er að, er á ensku eða er of almenn. 4. Skrifaðu tvær tillögur að nýrri fyrirsögn (í mesta lagi 60 stafir) og eina að lýsingu (í mesta lagi 155 stafir) fyrir hverja síðu, á eðlilegri íslensku og í okkar tóni. Lofaðu engu sem kemur ekki fram á síðunni, til dæmis verði, afslætti eða afhendingartíma. 5. Skilaðu töflu sem ég get unnið eftir: slóð, núverandi fyrirsögn, tillögur, stafafjöldi og hvers vegna breytingin ætti að hjálpa. Breyttu engu á vefnum og lofaðu engu um hve mikið smellum muni fjölga.
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Það getur tekið nokkrar vikur þar til nýjar fyrirsagnir sjást í leitarniðurstöðum. Ef þú breytir mörgum síðum í einu er erfiðara að sjá hvaða breytingar skiluðu árangri.
Byggt á: Bojan Tomic, Intelligent Tools
Verkfæri sem henta
-
Claude Spjall, skjöl og greining.
-
ChatGPT Spjall, skjöl og greining.
-
Gemini Spjall, tengt Google-þjónustum.