Peningar, reikningar og skattar
Haltu utan um það sem þarf að gera eftir andlát ástvinar
Fáðu verkefnalista í réttri röð, yfirlit yfir reikninga, áskriftir og samninga sem þarf að segja upp eða færa, og drög að tilkynningum, svo minna hvíli á minninu þegar mest mæðir á.
Svona gerir þú
- Opnaðu Claude í vafra eða appi.
- Hafðu gögnin tilbúin sem skipunin vísar í, til dæmis skjal, yfirlit eða texta, og hladdu þeim upp eða límdu þau inn.
- Límdu skipunina inn, skiptu út því sem er í [hornklofum] og sendu.
- Lestu svarið yfir og biddu um lagfæringar ef eitthvað vantar eða stenst ekki.
[Tengsl mín við hinn látna, til dæmis faðir minn] lést [dagsetning]. Hinn látni bjó [ein(n) / með maka] í [eigin íbúð / leiguíbúð / á hjúkrunarheimili]. Þetta veit ég um: [bankar, lán, tryggingar, áskriftir, bíll, fasteign, lífeyrissjóður, erfðaskrá ef hún er til, og annað]. Við erum [fjöldi] aðstandendur sem skiptum verkunum á milli okkar. 1. Finndu á island.is hvaða skref aðstandendur þurfa að taka eftir andlát og í hvaða röð, til dæmis um tilkynningu til sýslumanns, útförina og skipti dánarbúsins. Vísaðu í slóð við hvert skref og nefndu aðeins fresti sem standa í heimildinni. 2. Settu upp verkefnalista í töflu: verk, hver tekur það að sér, frestur ef hann er þekktur, staða og athugasemdir. Raðaðu verkunum þannig að það sem má ekki bíða sé efst. 3. Gerðu sérstakan lista yfir það sem þarf að tilkynna, segja upp eða færa á annað nafn, út frá því sem ég taldi upp: banka, tryggingar, síma, rafmagn, áskriftir, félagsaðild og stafræna reikninga. Merktu það sem gæti þurft að bíða þar til ljóst er hvernig skiptum verður háttað. 4. Skrifaðu stutt og hlutlaust bréf sem ég get notað til að tilkynna fyrirtæki um andlátið og spyrja hvaða gögn það þarf frá okkur. 5. Skrifaðu spurningar sem ég get borið undir sýslumann, útfararþjónustuna eða lögmann. Ekki fullyrða um lög, réttindi eða fresti nema þú getir vísað í heimild. Ég sendi allt sjálf(ur).
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Þetta er skipulag, ekki lögfræðiráðgjöf. Upplýsingar um skipti dánarbúa frá sýslumönnum eru á island.is. Skráðu þig aldrei inn á reikninga hins látna með aðgangi hans eða rafrænum skilríkjum, heldur hafðu samband við fyrirtækið sjálft.
Verkfæri sem henta
-
Claude Spjall, skjöl og greining.
-
ChatGPT Spjall, skjöl og greining.
-
Gemini Spjall, tengt Google-þjónustum.