leyst.is
Allar hugmyndir

Peningar, reikningar og skattar

Gerðu sparnaðaráætlun fyrir stóra markmiðið

Segðu hvað þú ætlar að safna fyrir og hvenær, og fáðu mánaðarlega upphæð, þrjár sviðsmyndir og töflu sem sýnir hvenær þú nærð markinu.

Claude ChatGPT Gemini Microsoft Copilot Auðvelt

Svona gerir þú

  1. Opnaðu Claude í vafra eða appi.
  2. Hafðu gögnin tilbúin sem skipunin vísar í, til dæmis skjal, yfirlit eða texta, og hladdu þeim upp eða límdu þau inn.
  3. Límdu skipunina inn, skiptu út því sem er í [hornklofum] og sendu.
  4. Lestu svarið yfir og biddu um lagfæringar ef eitthvað vantar eða stenst ekki.
skipun
Ég ætla að safna [upphæð] kr. fyrir [útborgun í íbúð / bíl / ferð / varasjóð] og vil ná því fyrir [dagsetning]. Ég á núna [upphæð] kr. og get lagt fyrir um [upphæð] kr. á mánuði. Útborguð laun heimilisins eru um [upphæð] kr. og föst útgjöld um [upphæð] kr.

1. Reiknaðu hvað ég þarf að leggja fyrir á mánuði til að ná markinu á réttum tíma, án vaxta, og sýndu útreikninginn.
2. Sýndu þrjár sviðsmyndir í töflu: það sem ég legg fyrir núna, það sem þarf, og milliveg. Tilgreindu í hverri hvenær ég næ markinu.
3. Sýndu hvaða áhrif vextir hefðu, en notaðu aðeins þá prósentu sem ég gef upp: [vextir eða „sleppa“].
4. Spurðu mig út í útgjöldin ef þú þarft að vita meira til að sjá hvar svigrúm gæti verið.
5. Settu áætlunina upp sem töflu mánuð fyrir mánuð sem ég get afritað í töflureikni.

Mæltu ekki með tilteknum sparnaðarreikningum, sjóðum eða fjárfestingum, og giskaðu ekki á vexti eða verðbólgu.

Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.

Þetta er útreikningur, ekki fjármálaráðgjöf. Vexti og kjör á sparnaðarreikningum sérðu hjá bankanum þínum.

Verkfæri sem henta

Póstlisti

5 hugmyndir í pósthólfið á hverjum morgni

Einn stuttur póstur kl. 7. Skipunin fylgir hverri hugmynd. Sjá síðasta póst

5 hugmyndir á hverjum morgni

5 hlutir sem gervigreind getur leyst fyrir þig, í pósthólfið kl. 7.

Einn stuttur póstur á dag. Skipunin fylgir hverri hugmynd, svo þú prófar á fimm mínútum. Sjá síðasta póst

Ókeypis. Afskráning með einum smelli. Persónuvernd