Heimilið og daglegt líf
Undirbúðu erfitt samtal
Fáðu aðstoð við að koma orðum að því sem þú vilt segja, sjá málið frá sjónarhóli hins aðilans og æfa samtalið áður en það fer fram.
Svona gerir þú
- Opnaðu Claude í vafra eða appi.
- Hafðu gögnin tilbúin sem skipunin vísar í, til dæmis skjal, yfirlit eða texta, og hladdu þeim upp eða límdu þau inn.
- Límdu skipunina inn, skiptu út því sem er í [hornklofum] og sendu.
- Lestu svarið yfir og biddu um lagfæringar ef eitthvað vantar eða stenst ekki.
Ég þarf að ræða [efni] við [vin / foreldri / maka / nágranna / vinnufélaga]. Staðan er þessi: [lýsing]. Það sem ég vil ná fram er [markmið]. 1. Spurðu mig nokkurra spurninga til að skilja málið betur áður en þú ráðleggur nokkuð. 2. Hjálpaðu mér að orða aðalatriðið í tveimur til þremur setningum, án ásakana. 3. Lýstu því hvernig hinn aðilinn gæti litið á málið og hvaða viðbrögðum ég get búist við. 4. Leiktu svo hinn aðilann og æfðu samtalið með mér. Segðu mér að lokum hvað gekk vel og hvað ég mætti orða öðruvísi. Taktu ekki undir allt sem ég segi, því þú heyrir aðeins mína hlið. Bentu mér á það ef þú heldur að ég sé að misskilja eitthvað.
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Byggt á: Anthropic
Verkfæri sem henta
-
Claude Spjall, skjöl og greining.
-
ChatGPT Spjall, skjöl og greining.
-
Gemini Spjall, tengt Google-þjónustum.