leyst.is
Allar hugmyndir

Vinna og skrifstofa

Svaraðu póstinum sem þú hefur verið að fresta

Límdu inn póstinn, segðu í tveimur setningum hvað þú vilt segja og fáðu svar sem er kurteist, skýrt og tilbúið til að senda.

Claude ChatGPT Gemini Microsoft Copilot Auðvelt

Svona gerir þú

  1. Opnaðu Claude í vafra eða appi.
  2. Hafðu gögnin tilbúin sem skipunin vísar í, til dæmis skjal, yfirlit eða texta, og hladdu þeim upp eða límdu þau inn.
  3. Límdu skipunina inn, skiptu út því sem er í [hornklofum] og sendu.
  4. Lestu svarið yfir og biddu um lagfæringar ef eitthvað vantar eða stenst ekki.
skipun
Ég hef frestað því að svara þessum pósti: [límdu póstinn inn]. Sendandinn er [yfirmaður / viðskiptavinur / kunningi / stofnun].

Það sem ég vil í raun segja er þetta: [tvær til þrjár setningar, óheflaðar ef þarf].

1. Segðu mér fyrst í einni setningu hvað sendandinn er að biðja um, svo ég sjái að við skiljum póstinn eins.
2. Skrifaðu svar á íslensku sem er kurteist og stutt, segir skýrt [já / nei / ekki núna] og nefnir næsta skref ef það er eitthvert.
3. Skrifaðu aðra útgáfu sem er ákveðnari, svo ég geti valið.

Lofaðu engu fyrir mína hönd sem ég nefndi ekki, og búðu ekki til afsakanir eða ástæður sem ég gaf ekki upp. Sendu ekkert, ég les yfir og sendi sjálf(ur).

Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.

Fjarlægðu trúnaðarupplýsingar úr póstinum áður en þú límir hann inn, einkum ef hann varðar aðra en þig.

Verkfæri sem henta

Póstlisti

5 hugmyndir í pósthólfið á hverjum morgni

Einn stuttur póstur kl. 7. Skipunin fylgir hverri hugmynd. Sjá síðasta póst

5 hugmyndir á hverjum morgni

5 hlutir sem gervigreind getur leyst fyrir þig, í pósthólfið kl. 7.

Einn stuttur póstur á dag. Skipunin fylgir hverri hugmynd, svo þú prófar á fimm mínútum. Sjá síðasta póst

Ókeypis. Afskráning með einum smelli. Persónuvernd