Nám og þekking
Grafðu upp sögu hússins, götunnar eða bæjarins
Láttu fulltrúa leita í gömlum blöðum, ljósmyndasöfnum og örnefnaskrám og taka saman það sem finnst um staðinn, með slóð á hverja heimild.
Svona gerir þú
- Opnaðu ChatGPT Agent og skráðu þig sjálf(ur) inn á þær síður sem fulltrúinn á að vinna á.
- Límdu skipunina inn, skiptu út því sem er í [hornklofum] og sendu.
- Fylgstu með á meðan hann vinnur og staðfestu sjálf(ur) allt sem kostar peninga eða sendir eitthvað frá þér.
- Lestu svarið yfir og biddu um lagfæringar ef eitthvað vantar eða stenst ekki.
Mig langar að vita meira um sögu [húss / götu / bæjar / jarðar] í [sveitarfélag]. Þetta veit ég fyrir: [byggingarár, eldri heiti, fyrri ábúendur]. 1. Leitaðu á timarit.is að staðnum undir öllum heitum og rithætti sem koma til greina og skráðu blað, dagsetningu og slóð við hverja grein sem þú finnur. 2. Leitaðu að ljósmyndum og munum á sarpur.is og að örnefnum í nágrenninu á nafnid.is. 3. Athugaðu hvort sveitarfélagið, héraðsskjalasafnið eða Minjastofnun hafa birt húsakönnun eða byggðasögu um svæðið. 4. Settu það sem þú finnur í tímalínu og skrifaðu stutta frásögn. Notaðu aðeins heimildir sem þú opnaðir sjálf(ur). Ef tveir staðir bera sama nafn, sýndu mér báða og láttu mig velja. Segðu mér líka hvað ég þyrfti að skoða á safni í eigin persónu.
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Verkfæri sem henta
-
ChatGPT Agent Vafrar og vinnur verk í skrefum.
-
Claude í Chrome Vafrar og smellir fyrir þig í þínum vafra.
-
Claude Spjall, skjöl og greining.