Lærðu á Excel með þínu eigin vinnuskjali
Fáðu stuttar æfingar byggðar á skjali sem þú notar í vinnunni, til dæmis í síum, veltitöflum og uppflettiformúlum, með lausnum og skýringum og minnisblaði með flýtilyklum, svo þú lærir einmitt það sem sparar þér tíma.
Svona gerir þú
- Taktu afrit af skjalinu og fjarlægðu nöfn, kennitölur og annað sem á ekki erindi út af vinnustaðnum, eða búðu til sambærilegt skjal með tilbúnum tölum.
- Hladdu afritinu upp í Claude eða ChatGPT, eða opnaðu það í Excel með Copilot, og límdu skipunina inn.
- Taktu eina æfingu á dag og segðu gervigreindinni hvernig gekk, svo næsta æfing passi við það sem þú þarft að æfa.
Ég nota Excel í vinnunni til að [til dæmis halda utan um pantanir, gera mánaðaryfirlit eða skrá tíma] og kann [lýsing, til dæmis að slá inn tölur og nota SUM]. Mig langar að verða fljótari, sérstaklega í [til dæmis að sía og raða, draga saman tölur og fletta upp á milli blaða]. Hér er afrit af skjali sem ég vinn með, án persónuupplýsinga: [skjal]. Excel er á [íslensku / ensku] hjá mér og notar [semíkommu / kommu] á milli viðfanga. 1. Skoðaðu skjalið og segðu mér hvaða þrjú til fimm atriði í Excel myndu spara mér mestan tíma í þessu verki og hvers vegna. 2. Búðu til nýtt Excel-skjal með einni æfingu á hverju blaði, byggðri á gögnunum mínum. Á hverju blaði á að standa hvað ég á að gera, í mesta lagi fimm skref, og hvar ég set svarið. 3. Raðaðu æfingunum frá þeirri auðveldustu til þeirrar erfiðustu. 4. Settu lausnirnar á sérstakt blað aftast, með formúlunum sjálfum og stuttri útskýringu á hverjum hluta þeirra, svo ég geti reynt sjálf(ur) fyrst. 5. Gerðu minnisblað á einni síðu með flýtilyklum og formúlum úr æfingunum sem ég get haft við höndina. 6. Þegar ég segi þér hvernig gekk skaltu búa til eina nýja æfingu sem tekur á því sem mér fannst erfiðast. Breyttu ekki skjalinu sem ég hlóð upp.
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Verkfæri sem henta
-
Claude Spjall, skjöl og greining.
-
ChatGPT Spjall, skjöl og greining.
-
Microsoft Copilot Innbyggt í Word, Excel, Outlook og Teams.