Innkaup og neytendamál
Gerðu jólagjafalistann og haltu þig innan ramma
Teldu upp fólkið og fjárhagsrammann og fáðu töflu með tveimur tillögum á mann, áætluðu verði og samtölu sem stenst.
Svona gerir þú
- Opnaðu Claude í vafra eða appi.
- Hafðu gögnin tilbúin sem skipunin vísar í, til dæmis skjal, yfirlit eða texta, og hladdu þeim upp eða límdu þau inn.
- Límdu skipunina inn, skiptu út því sem er í [hornklofum] og sendu.
- Lestu svarið yfir og biddu um lagfæringar ef eitthvað vantar eða stenst ekki.
Ég þarf að kaupa jólagjafir fyrir þetta fólk: [nafn, aldur, áhugamál og hvað viðkomandi á nú þegar; ein lína á mann]. Heildarramminn er [upphæð] kr. 1. Skiptu rammanum á milli fólksins og sýndu mér skiptinguna áður en lengra er haldið. 2. Stingdu upp á tveimur gjöfum á mann: annarri öruggri og annarri sem kemur á óvart. Miðaðu við það sem fæst í verslunum á Íslandi eða má panta með góðum fyrirvara. 3. Settu allt í töflu: nafn, gjöf, áætlað verð og hvar hún gæti fengist. Sýndu samtölu neðst og hvað er eftir af rammanum. 4. Merktu þær gjafir sem þarf að panta að utan, því þær þurfa lengri fyrirvara og gjöld geta bæst við verðið. Verðin eru áætlun og þú átt að segja það skýrt. Nefndu ekki nákvæmt verð í tiltekinni verslun nema þú hafir flett því upp og getir vísað í slóðina.
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Verð frá gervigreind eru ágiskun þar til þú hefur skoðað þau sjálf(ur) hjá versluninni.
Verkfæri sem henta
-
Claude Spjall, skjöl og greining.
-
ChatGPT Spjall, skjöl og greining.
-
Gemini Spjall, tengt Google-þjónustum.