Skrifaðu fundarboð með dagskrá sem heldur fundinum við efnið
Þegar þú boðar fund færðu skýrt fundarboð með tilgangi, tímasettri dagskrá og því sem þátttakendur þurfa að lesa eða undirbúa, ásamt sniðmáti fyrir fundargerðina svo ákvarðanir og verkefni séu skráð jafnóðum.
Svona gerir þú
- Opnaðu Claude í vafra eða appi.
- Hafðu gögnin tilbúin sem skipunin vísar í, til dæmis skjal, yfirlit eða texta, og hladdu þeim upp eða límdu þau inn.
- Límdu skipunina inn, skiptu út því sem er í [hornklofum] og sendu.
- Lestu svarið yfir og biddu um lagfæringar ef eitthvað vantar eða stenst ekki.
Ég ætla að boða fund um [efni fundarins] [dagsetning] kl. [tími]. Fundurinn á að taka [lengd] og verður [á staðnum / á Teams / á Zoom / bæði]. Þátttakendur eru [fjöldi og hlutverk, til dæmis tveir úr fjármálum, verkefnastjóri og fulltrúi viðskiptavinar]. Í lok fundar á að liggja fyrir [til dæmis ákvörðun um hvort við förum í verkið, samþykkt áætlun eða verkaskipting]. Bakgrunnur: [stutt lýsing eða skjöl sem tengjast málinu]. 1. Spurðu mig fyrst ef markmiðið er óljóst eða virðist ekki nást á þeim tíma sem fundinum er ætlaður. 2. Skrifaðu fundarboð sem rúmast á einum skjá: tilganginn í einni setningu, hvað á að liggja fyrir í lok fundar, dagskrá með tímasetningu á hverjum lið og hver stýrir honum, og hvað hver og einn þarf að lesa eða undirbúa. 3. Raðaðu dagskránni þannig að það sem krefst ákvörðunar komi snemma, og merktu hvaða liðir eru til ákvörðunar, hverjir til umræðu og hverjir aðeins til kynningar. 4. Ef einhvern lið mætti frekar afgreiða í tölvupósti, bentu á það. 5. Gerðu stutt sniðmát fyrir fundargerðina sem fylgir dagskránni: ákvarðanir, verkefni með ábyrgðaraðila og fresti, og það sem bíður næsta fundar. Hafðu tóninn [formlegan / óformlegan] og skrifaðu á [íslensku / ensku]. Sendu ekkert fyrir mig.
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Verkfæri sem henta
-
Claude Spjall, skjöl og greining.
-
ChatGPT Spjall, skjöl og greining.
-
Gemini Spjall, tengt Google-þjónustum.
-
Microsoft Copilot Innbyggt í Word, Excel, Outlook og Teams.