Láttu fulltrúa fylgjast með flugverðinu áður en þú bókar
Settu upp tímasett verk sem flettir upp sömu flugleiðinni á hverjum morgni, skráir lægsta heildarverðið með farangri í töflu og lætur þig vita þegar það fer undir upphæðina sem þú settir þér, svo þú þurfir ekki sjálf(ur) að leita á hverjum degi.
Svona gerir þú
- Keyrðu skipunina fyrst handvirkt í Claude Cowork eða ChatGPT Agent og berðu verðin saman við það sem þú sérð sjálf(ur) á vef flugfélagsins.
- Þegar þú treystir útkomunni skaltu setja skipunina upp sem tímasett verk sem keyrir á hverjum morgni, og stöðva verkið þegar þú hefur bókað.
- Bókaðu sjálf(ur) á vef flugfélagsins og athugaðu farangursheimild og skilmála um breytingar áður en þú greiðir.
Keyrðu þetta á hverjum morgni kl. [tími] fram til [dagsetning]. Ég ætla að fljúga frá Keflavík til [áfangastaður] og heim aftur. Brottför er í kringum [dagsetning] og heimkoma í kringum [dagsetning], og ég get hnikað hvoru um sig um [fjöldi] daga. Við erum [fjöldi fullorðinna og barna, með aldri barnanna] og þurfum [til dæmis eina innritaða tösku á mann / aðeins handfarangur]. Ég vil helst [beint flug / ekki fleiri en eina millilendingu] og ekki fara í loftið fyrir kl. [tími]. 1. Leitaðu að flugi sem passar, bæði á vefjum flugfélaganna sem fljúga þessa leið og í [leitarvél fyrir flug, til dæmis Google Flights]. 2. Skráðu í töfluna [heiti skjals] dagsetningu leitarinnar, flugfélag, flugtíma, millilendingar og heildarverð fyrir allan hópinn með þeim farangri sem við þurfum. Ef verð fyrir farangur kemur ekki fram skaltu skrá að það vanti í stað þess að giska. 3. Berðu verðið saman við fyrri daga og segðu mér í tveimur línum hvort það hefur hækkað, lækkað eða staðið í stað. 4. Láttu mig vita sérstaklega ef heildarverðið fer undir [upphæð] kr. Bókaðu ekkert, settu ekkert í körfu og skráðu þig hvergi inn. Ef þú getur ekki lesið verð af síðu, skráðu það sem villu.
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Flugverð breytist oft og það sem verkið skráir getur verið orðið úrelt þegar þú opnar vefinn. Staðfestu alltaf verð og skilmála á vef flugfélagsins áður en þú bókar.
Byggt á: Daria Cupareanu, AI Blew My Mind
Verkfæri sem henta
-
Claude Cowork Vinnur í möppum og skjölum á tölvunni þinni.
-
ChatGPT Agent Vafrar og vinnur verk í skrefum.