leyst.is
Allar hugmyndir

Heimilið og daglegt líf

Skrifaðu eitt blað fyrir þann sem passar börnin eða húsið

Svaraðu nokkrum spurningum og fáðu skýrt blað fyrir afa og ömmu, barnapíu eða þann sem lítur eftir heimilinu meðan þú ert í burtu, með dagskrá barnanna, mat og ofnæmi, dýrunum, sérvisku hússins og því hvert á að hringja ef eitthvað kemur upp á.

Claude ChatGPT Gemini Microsoft Copilot Auðvelt

Svona gerir þú

  1. Opnaðu Claude í vafra eða appi.
  2. Hafðu gögnin tilbúin sem skipunin vísar í, til dæmis skjal, yfirlit eða texta, og hladdu þeim upp eða límdu þau inn.
  3. Límdu skipunina inn, skiptu út því sem er í [hornklofum] og sendu.
  4. Lestu svarið yfir og biddu um lagfæringar ef eitthvað vantar eða stenst ekki.
skipun
Ég þarf að skilja eftir leiðbeiningar fyrir [til dæmis afa og ömmu, barnapíu eða nágranna] sem [passar börnin / lítur eftir húsinu og dýrunum] frá [dagsetning] til [dagsetning] meðan við erum [í burtu / í vinnuferð / á ferðalagi erlendis]. Spurðu mig spurninga í lotum, einn flokk í einu, og bíddu eftir svari áður en þú heldur áfram:

1. Börnin: aldur, dagskrá hvers dags (hvenær þau vakna, skóli eða leikskóli, frístund, æfingar og hver sækir hvert), matartímar, svefnvenjur, skjátími og reglur heimilisins.
2. Heilsa: ofnæmi, lyf og hvenær þau eru gefin, hvað róar hvert barn og hvað á að gera ef barn veikist.
3. Dýr og plöntur: fóður og skammtar, göngutúrar, kattasandur og hvað þarf að vökva.
4. Húsið: hvenær sorptunnur eru tæmdar, hiti og ofnar, þvottavélin, hvar skrúfað er fyrir vatnið, hvar rafmagnstaflan er og það sem er sérstakt við húsið.
5. Fólk og símanúmer: hvernig á að ná í okkur, nágranni eða ættingi sem má leita til, skólinn eða leikskólinn og heilsugæslan.

Settu síðan allt upp á eitt til tvö blöð sem hægt er að prenta og hengja á ísskápinn: fyrst neyðarupplýsingar og símanúmer, síðan dagskrá hvers dags í töflu og loks annað eftir efni. Settu neyðarnúmerið 112 efst. Finndu á heilsuvera.is hvert á að hringja vegna veikinda utan opnunartíma heilsugæslunnar og vegna gruns um eitrun, og vísaðu í slóðina. Gerðu líka stutta útgáfu sem ég get sent í skilaboðum og bentu mér á það sem vantar eða gæti valdið misskilningi.

Biddu mig aldrei um lykilorð, kóða að öryggiskerfi eða hurðum, kortanúmer eða kennitölur. Það skrifa ég sjálf(ur) á útprentaða blaðið ef þarf.

Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.

Skrifaðu kóða, lykilorð og kennitölur aðeins á útprentaða blaðið, ekki inn í gervigreindina. Ef barn tekur lyf að staðaldri eða er með alvarlegt ofnæmi skaltu fara sjálf(ur) yfir þann hluta með þeim sem passar. Í neyðartilvikum á alltaf að hringja í 112.

Verkfæri sem henta

Póstlisti

5 hugmyndir í pósthólfið á hverjum morgni

Einn stuttur póstur kl. 7. Skipunin fylgir hverri hugmynd. Sjá síðasta póst

5 hugmyndir á hverjum morgni

5 hlutir sem gervigreind getur leyst fyrir þig, í pósthólfið kl. 7.

Einn stuttur póstur á dag. Skipunin fylgir hverri hugmynd, svo þú prófar á fimm mínútum. Sjá síðasta póst

Ókeypis. Afskráning með einum smelli. Persónuvernd

Sendu inn hugmynd

Fékkstu gervigreind til að gera eitthvað gagnlegt, eða sástu einhvern gera það? Segðu okkur frá. Við lesum allt yfir áður en það birtist og getum þín ef þú vilt.