Innkaup og neytendamál
Skrifaðu andmæli við stöðubrotsgjaldi eða bílastæðakröfu
Sendu mynd af álagningunni og lýstu atvikum og fáðu rökstudd andmæli þar sem gervigreindin finnur reglurnar sem eiga við og vísar í þær.
Svona gerir þú
- Opnaðu Claude í vafra eða appi.
- Hafðu gögnin tilbúin sem skipunin vísar í, til dæmis skjal, yfirlit eða texta, og hladdu þeim upp eða límdu þau inn.
- Límdu skipunina inn, skiptu út því sem er í [hornklofum] og sendu.
- Lestu svarið yfir og biddu um lagfæringar ef eitthvað vantar eða stenst ekki.
Ég fékk [stöðubrotsgjald frá sveitarfélagi / kröfu frá einkareknu bílastæðafyrirtæki] þann [dagsetning] við [staður]. Mynd af álagningunni fylgir. Atvik frá mínu sjónarhorni: [lýsing]. Gögn sem ég á: [myndir af merkingum, kvittun úr greiðsluappi, annað]. 1. Lestu álagninguna: hver leggur gjaldið á, á hvaða grundvelli, hver er upphæðin og hvert og hvenær á að senda andmæli samkvæmt skjalinu sjálfu? 2. Finndu reglurnar sem eiga við á vef álagningaraðilans og í lögum á althingi.is. Vísaðu í grein og slóð og segðu mér hvað þú fannst ekki. 3. Mettu hreinskilnislega hvort ég hef rök sem halda og hver þeirra eru veik. 4. Skrifaðu stutt og málefnaleg andmæli með málsnúmeri, bílnúmeri, atvikalýsingu, rökum og lista yfir fylgigögn. Ekki fullyrða um lög, fresti eða upphæðir eftir minni. Ekki senda neitt fyrir mig.
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Ólíkar reglur gilda um gjöld sveitarfélaga og kröfur einkafyrirtækja. Kannaðu sjálf(ur) andmælafrestinn á álagningunni og hvort gjaldið hækkar á meðan málið er til meðferðar.
Verkfæri sem henta
-
Claude Spjall, skjöl og greining.
-
ChatGPT Spjall, skjöl og greining.
-
ChatGPT Agent Vafrar og vinnur verk í skrefum.