Komdu þér aftur inn í vinnuna eftir fríið
Láttu gervigreindina fara yfir póstinn, dagatalið og spjallrásirnar frá því þú fórst og fáðu forgangsraðaðan lista: hvað þarf svar í dag, hvað var ákveðið á meðan og hvaða fundi þú þarft að undirbúa, ásamt drögum að svörum.
Svona gerir þú
- Notaðu Copilot ef vinnustaðurinn er með Microsoft 365, annars Claude, Gemini eða ChatGPT tengt vinnupóstinum og dagatalinu, eða Cowork með aðgang að þeim.
- Límdu skipunina inn fyrsta morguninn, eða kvöldið áður ef þú vilt mæta með listann tilbúinn.
- Opnaðu póstana sem efstu atriðin byggja á og staðfestu stöðuna áður en þú svarar.
- Lagaðu drögin og sendu þau sjálf(ur).
Ég var í [sumarfríi / jólafríi / fæðingarorlofi / veikindaleyfi] frá [dagsetning] og kem aftur til vinnu [dagsetning]. Ég starfa sem [starf] og helstu verkefnin mín eru [verkefni]. [Áður en ég fór skrifaði ég afhendingarskjal, sem fylgir hér: [skjal].] 1. Farðu yfir póstinn sem barst meðan ég var í burtu, ásamt [spjallrásum í Teams eða Slack / sameiginlegum möppum] sem tengjast verkefnunum mínum. Slepptu fréttabréfum, sjálfvirkum tilkynningum og pósti þar sem ég var aðeins í afriti, en segðu mér hve mikið það var. 2. Skrifaðu stutt yfirlit fyrir hvert verkefni: hvað gerðist, hvað var ákveðið, hver ákvað það og hvort eitthvað breyttist frá því sem stóð í afhendingarskjalinu. 3. Gerðu lista yfir það sem bíður mín, með það mest áríðandi efst: spurningar sem enn er ósvarað, beiðnir og loforð með skilafresti og mál þar sem einhver beið eftir að ég kæmi aftur. Vísaðu í póstinn eða skilaboðin sem hvert atriði byggir á. 4. Farðu yfir dagatalið fyrstu [fjöldi] dagana eftir að ég kem aftur og segðu mér hvaða fundi ég þarf að undirbúa og hvaða gögn ég ætti að lesa fyrst. 5. Skrifaðu drög að stuttum svörum við því sem er mest áríðandi, en sendu ekkert. Ekki eyða, færa eða merkja neinn póst sem lesinn. Ef þú ert ekki viss um hvort mál hafi verið leyst, segðu það frekar en að giska.
Skiptu út því sem er í [hornklofum] og límdu skipunina inn í verkfærið.
Krefst þess að gervigreindin hafi aðgang að vinnupóstinum. Notaðu aðeins verkfæri og tengingar sem vinnustaðurinn leyfir fyrir vinnugögn. Gervigreindin getur misskilið hvort mál hafi verið leyst, svo staðfestu mikilvæg atriði við samstarfsfólkið.
Verkfæri sem henta
-
Microsoft Copilot Innbyggt í Word, Excel, Outlook og Teams.
-
Claude Cowork Vinnur í möppum og skjölum á tölvunni þinni.
-
Claude Spjall, skjöl og greining.
-
Gemini Spjall, tengt Google-þjónustum.
-
ChatGPT Spjall, skjöl og greining.