Með tengingu getur Claude eða ChatGPT lesið póstinn þinn, fundið skjal, borið saman verð í íslenskri verslun eða fundið
gistingu, í stað þess að þú afritir allt inn sjálf(ur). Hér eru aðeins opinberar tengingar, frá fyrirtækjunum sjálfum eða þeim sem gera Claude og ChatGPT.
1Bættu tengingunni við Einu sinni, í stillingum Claude eða ChatGPT.
2Leyfðu aðganginn Þú ræður hvað hún sér og getur aftengt hvenær sem er.
3Biddu um verkið Notaðu skipanirnar á hverri síðu eða skrifaðu þína eigin.
Íslensk fyrirtæki
Verð og vöruúrval beint úr íslenskum verslunum. Fleiri bætast við.
Er fyrirtækið þitt með tengingu við gervigreind?Við skrifum síðu um hana með skipunum sem fólk getur prófað strax, og segjum frá henni í morgunpóstinum.
Aðeins opinberar tengingar eru á þessari síðu, frá fyrirtækjunum sjálfum eða þeim sem gera Claude og ChatGPT, aldrei tengingar þar sem þú þarft að afhenda lykilorð. „ChatGPT?“ þýðir að OpenAI hefur ekki staðfest að tengingin virki á Íslandi; áður voru tengingar ChatGPT ekki í boði á EES-svæðinu. Heiti í valmyndum breytast stundum. Ef tenging birtist ekki hjá þér, láttu okkur vita. Athugað síðast 22. október 2026.